Auglýsing

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hver verđur nćst til ţess ađ eignast barn?

Gagnasafn

jććććććja!

02. október 2006 klukkan 07:36
þar sem enginn þorir að snerta lyklaborðið í þessum frænkuklúbb ætla ég að láta vaða, bara tvenna hjá mér! En það sem mér liggur á hjarta í þetta skiptið er opnunartími skemmtistaða í bandaskandaríkjunum. Þannig er mál með vexti að á föstudaginn hafði ég planað heljarinnar útreið og rauðmálun bæjarins með vinum og vandamönnum. Fékk mér ópal yfir leiknum hjá Magnúsi og klukkan tíu var ég orðin rjóð og sæt í vöngum. Svo förum við heim og hlustum á Önnu-lagið og allt í blússandi stuði. Ég hlýt að hafa spilað lagið í þrjá tíma streit, því að áður en ég vissi af var klukkan að ganga eitt og bara klukkutími eftir á börunum!!! Þá tapaði ég nottla gleðinni, enda ekki annað hægt. Nú svo eftir um tíu mínútur af fýlukasti kom mágur minn með þennan líka skemmtilega frasa... Lets make lemonade, eða gerum bara límónaði úr þessu!! ??? Ha, hugsa ég, á núna að fara að gera sober dober kvöld úr þessu og búa til límonaði, eða er hann að taka joey á þetta??

Nei, hvorugur kosturinn réttur. To make lemonade þýðir sko á kanamálinu að gera bara gott úr þeim sítrónum sem maður á=gera gott úr þessum klukkutíma sem við eigum eftir! Já, aðra eins lexíu hef ég ekki lært í háa herrans tíð því við brunuðum niðrí bæ, til að vera þar í klukkutíma og þvílíkur klukkutími, ég hef bara ekki skemmt mér svona vel lengi:)

En það er samt asnalegt að það sé bara opið til 2, en aftur á móti má líka skella skuldinni á mig að hafa ekki asnast niðrí bæ fyrr!!

Vil bara enda þessa sunnudags-hugsun mína á þessu myndbandi http://www.youtube.com/watch?v=ydRwu_tOBPw, núna fer ég sko pottþétt í ræktina og fæ mér einhverjar með mér til að geta dansað svona á brettinu! (hvernig fær maður linkinn til að koma beint inn??)

blésaðar
Ólöf

Partý á rassgötu 3

17. september 2006 klukkan 02:02
Sælar frænkur. Eins og veður og fallbarátta gefur til kynna, þá er haustið komið í allri sinni dýrð. Hérna vestan megin við hafið er hitinn svona í og um 15-20 stig með smá golu og sólskini. En það er eitt undarlegt við haustið hérna úti, svo virðist sem að dýraheimurinn tapi skynseminni og vitinu þegar að hitastigið lækkar og finnast hræ víðast hvar um vegi Minneapolis. Íkornar hitta ekki á næsta tré þegar þeir hoppa á milli, fuglar tapa sjóninni og fljúga á aðkomandi bíla, pokarottur borða yfir sig og komast ekki yfir götuna nægilega hratt og mýsnar, tja já mýsnar virðast hlaupa í gildrurnar haldandi að hnetusmjörið sé þar einungis þeim til ætis. 

Nú, þið eruð eflaust að velta fyrir ykkur hvert ég sé að fara með allri þessari dýraumræðu, en eins asnalega og það hljómar þá fór ég að hugsa um þetta eftir að ég fjárfesti í einu stykki kjúklingahatti fyrir hatta-afmælið okkar systra og molliar (möggu líka, hún bara kemst ekki) en það er mæting í dalinn niðrí bæ klukkan 8 í kvöld og enginn kemst inn nema að vera með hatt!

Ég verð sko með myndavélina á kantinum og kannski verða myndir teknar af einhverskonar gæsum... hvar sem þær nú finnast:)

hehe. en ég hlakka til að sjá sumar ykkar á miðvikudag. lifi frænkuklúbbur!
aníta þú ert næst, haha

alltílæiblééééés
Djólöf in da steit.

Nýjar myndir......

13. september 2006 klukkan 00:32

Jæja pæjur.,.,.,ég skellti inn nokkrum myndum af okkur frá því á frænkudjamminu þegar það var, bara svona til gamans. Ég ætlaði að setja inn fleiri myndir en það er víst einhver kvóti á þessu þannig að við þurfum að borga til þess að geta sett fleiri en 50 myndir inn,, tímum við því ? hahaha
Svo endilega þið sem komið hingað inn kvittið í gestabókina.
En ég kveð ykkur að sinni og Aníta ég skora á þig að blogga næst ég veit þú getur það Ullandi
Kveðja Vala Svala Svalur

Velkomin á síđuna okkar!!!

11. september 2006 klukkan 02:27
Hæ stelpur.. jæja þá er loksins komið að því. Það er komin síða fyrir okkur frænkurnar til að flippa og kjafta um það sem okkur líður á hjarta. Endilega ekki hika við að blogga. Þetta verður geðveikt gaman. Já og Notendanúmerið er símanúmerið mitt og lykilorðið hefur verið sent til ykkar í smsi :D
Já endilega kommentiði líka og svariði könnuninni. :D
Þetta verður geðveikt gaman.
Endilega stelpur látiði heyra í ykkur ;)
Kveðja, Bjöggan